Ferill 537. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 871  —  537. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um fjölda hjúkrunar- og dvalarrýma.

Frá Þorsteini Víglundssyni.


     1.      Hve mörg ný hjúkrunar- og dvalarrými hafa verið tekin í notkun undanfarin 10 ár, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hve mörgum hjúkrunar- og dvalarrýmum hefur verið lokað á sama tímabili, hvort heldur er vegna lokunar viðkomandi stofnana/húsnæðis eða fækkunar rýma, t.d. vegna áherslu á einstaklingsrými?
     3.      Hve mörg hjúkrunar- og dvalarrými er áætlað að taka í notkun á næstu tveimur árum?
     4.      Liggur fyrir nýlegt mat á þörf fyrir ný hjúkrunar- og dvalarrými, bæði miðað við núverandi stöðu og næstu 5–10 árin?


Skriflegt svar óskast.