Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 216  —  203. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir álftir og gæsastofna á Íslandi.


Flm.: Þórarinn Ingi Pétursson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra, í samvinnu við Umhverfisstofnun og hagsmunaaðila, að gera stjórnunar- og verndaráætlun fyrir álftir og alla gæsastofna á Íslandi. Ráðherra skili Alþingi skýrslu um áætlunina fyrir 1. mars 2020.

Greinargerð.

    Með tillögu þessari er lagt til að Alþingi feli umhverfis- og auðlindaráðherra, í samvinnu við Umhverfisstofnun og hagsmunaaðila, að gera stjórnunar- og verndaráætlun fyrir álftastofninn og alla gæsastofna á landinu. Ráðherra skili Alþingi skýrslu um áætlunina fyrir 1. mars 2020.
    Á Íslandi verpa þrjár tegundir gæsa: grágæs (Anser anser), heiðagæs (Anser brachyrhynchus) og helsingi (Branta leucopsis). Að auki eru tvær tegundir gæsa árvissir fargestir: blesgæs (Anser albifrons flavirostris) og margæs (Branta bernicla). Á síðustu áratugum hafa gæsastofnar á norðlægum slóðum stækkað mikið og er heiðagæsastofninn nú í sögulegu hámarki. Frá 1950 hefur sameiginlegur heiðagæsastofn Íslands og Grænlands tuttugufaldast og var ríflega 500 þúsund fuglar haustið 2015 sem er mun meira en árið áður. 1 Aukið fæðuframboð, einkum á ræktuðu landi, á þátt í að gæsastofninn hefur vaxið. Álftin (Cygnus cygnus) er algengur varpfugl víða um land, bæði á láglendi og vel grónum svæðum með tjörnum og vötnum á hálendi. Stofninn hefur vaxið stöðugt í a.m.k. 30 ár og var 31 þúsund fuglar í janúar 2015. 2
    Frá árinu 2013 hefur Ísland verið aðili að samningnum um vernd farfugla og votlendisfugla í Afríku og Evrasíu (e. African-Eurasian Migratory Waterbird Agreement, AEWA). 3 Samningurinn kveður á um aðgerðir til verndunar votlendisfuglum á viðkomustöðum þeirra og nær til fjölda fuglategunda sem verpa eða hafa áningarstað á Íslandi. Á grundvelli samningsins geta ríki ákveðið að vinna að því að stýra stofnstærðum fuglategunda sem valda skemmdum á uppskeru. AEWA hefur ráðist í gerð áætlana til að hafa áhrif á stærð gæsastofna í Evrópu, m.a. vegna heiðagæsar, grágæsar og helsingja. Árið 2012 var t.d. gerð áætlun um að minnka stærð Svalbarðastofns heiðagæsa í Danmörku og Noregi í samstarfi við Holland og Belgíu niður í u.þ.b. 60 þúsund fugla (gildistími 2012–2022). Takmarkið náðist tveimur árum síðar. Markmið áætlunarinnar um Svalbarðastofninn er að viðhalda stofnstærðinni í 60 þúsund fuglum til þess að lágmarka skaða sem gæsirnar valda á uppskeru og gróðri í freðmýri (túndru) án þess að gera út af við stofninn.
    Ágangur álfta og gæsa veldur bændum fjárhagslegu tjóni en þessi vandi einskorðast þó ekki við Ísland. Árið 2016 kom út skýrsla á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins um tjón af völdum álfta og gæsa árin 2014 og 2015. 4 Á þessu tímabili gátu bændur tilkynnt rafrænt um tjón sitt í gegnum Bændatorgið. Niðurstaða skýrslunnar sýndi að tjón af völdum ágangs fugla var mest á túnum. Í flestum tilvikum var um að ræða fleiri en eina fuglategund sem ollu tjóni á tilteknu ræktarlandi. Fram kom að mun fleiri tjónatilkynningar bárust árið 2014 en árið eftir.
    Í 12. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað, nr. 1260/2018, er að finna heimild til að greiða stuðning skv. 9. gr. vegna ágangs álfta og gæsa á ræktunarland bænda. Samkvæmt ákvæðinu ákveður framkvæmdanefnd búvörusamninga hvort nota eigi heimild til þessa stuðnings. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar má ætla að margir bændur hafi látið hjá líða að tilkynna um tjón því að lítið hafi áunnist síðustu ár í að fá tjón viðurkennt eða bætt eða að fá viðeigandi úrræði til að verjast ágangi. Flestir bændur notast við fælur til að verjast tjóni í ræktunarlöndum sínum. Reynslan sýnir að fuglarnir hafa vanist fælunum og því virka þær ekki sem skyldi. Því er ljóst að finna þarf langtímalausn til að stemma stigu við þessum vanda.
    Flutningsmenn telja nauðsynlegt að á grundvelli framangreinds samnings verði gerð áætlun um stjórn og vernd álfta og gæsastofna á Íslandi í því skyni að minnka tjón bænda vegna ágangs álfta og gæsa. Í áætluninni þarf að tryggja vernd stofnanna. Til að tryggja að markmiðið með stjórnunar- og verndaráætluninni náist er nauðsynlegt að gagnasöfnun í málaflokknum verði bætt svo unnt verði að leggja mat á hvort þær aðgerðir sem farið verði í á grundvelli áætlunarinnar skili tilætluðum árangri.


1     www.ni.is/node/27120
2     www.ni.is/node/27119
3     www.unep-aewa.org/sites/default/files/basic_page_documents/agreement_text_english_final.pdf
4     www.ust.is/library/Skrar/Einstaklingar/Veidi/Fuglar/Sk%C3%BDrsla%20um%20tj%C3%B3n %20af%20v%C3%B6ldum%20%C3%A1lfta%20og%20g%C3%A6sa.pdf