Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 423 — 359. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi.
Flm.: Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson, Þorsteinn Sæmundsson.
Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa lagafrumvarp þar sem kveðið verði á um ráðstafanir sem leiði til þess að eldsneytisverð í millilandaflugi lækki.
Ráðherra leggi fram frumvarpið eigi síðar en á haustþingi 2020.
Greinargerð.
Samkvæmt lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994, skal jafna flutningskostnað á olíuvörum eins og nánar er þar kveðið á um. Markmið laganna er að tryggja að eldsneytisverð sé hið sama um allt land til að jafna búsetuskilyrði og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
Jöfnun á flutningskostnaði á hins vegar ekki við um eldsneyti sem er ætlað til útflutnings og fellur þar undir eldsneyti til millilandaflugs og því er eldsneyti dýrara á millilandaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum heldur en í Keflavík.
Með tillögu þessari er lagt til að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra undirbúi lagafrumvarp í þá veru að breyting verði á til að verð á eldsneyti í millilandaflugi lækki. Slík breyting mundi styrkja stöðu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og ýta undir dreifingu ferðamanna um landið.