Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 759  —  433. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993, með síðari breytingum (greiðslumark mjólkur).

(Eftir 2. umræðu, 16. desember.)


1. gr.

    2. og 3. mgr. 53. gr. laganna falla brott.

2. gr.

    54. gr. laganna orðast svo:
    Öll aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur skulu fara fram á markaði. Þó er heimil tilfærsla greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila og við ábúendaskipti eða breytingu skráningar ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða. Ráðherra skal í reglugerð mæla fyrir um nánari framkvæmd markaðar með greiðslumark, forgang nýliða og frekari skilyrði fyrir tilfærslu eða breytingu skráningar greiðslumarks.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2020.