Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 771  —  432. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um tekjuskatt (vistvæn ökutæki o.fl.).

(Eftir 2. umræðu, 16. desember.)


I. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar“ tvívegis í 1. mgr. kemur: rafmagns- eða vetnisbifreiðar.
     b.      2. mgr. orðast svo:
                      Tollyfirvöldum er heimilt við tollafgreiðslu að fella niður virðisaukaskatt eftir því sem nánar segir:
                  1.      Af rafmagns- eða vetnisbifreið að hámarki 1.560.000 kr.
                  2.      Af tengiltvinnbifreið að hámarki 960.000 kr. til og með 31. desember 2020, að hámarki 600.000 kr. frá 1. janúar til 31. desember 2021 og að hámarki 480.000 kr. frá 1. janúar til 31. desember 2022.
     c.      2. tölul. 2. mgr. fellur brott.
     d.      Í stað fjárhæðarinnar „6.000.000 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 6.500.000 kr.
     e.      Orðin „og að hámarki 4.000.000 kr. vegna tengiltvinnbifreiðar“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
     f.      1. tölul. 4. mgr. orðast svo: Ökutækið sé skráð sem bifreið í ökutækjaskrá, sbr. 9. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og falli undir vöruliði 8703 eða 8704 í tollskrá.
     g.      2. tölul. 4. mgr. fellur brott.
     h.      Í stað ártalsins „2020“ í 6. mgr. kemur: 2023, sbr. þó 2. tölul. 2. mgr.
     i.      Í stað tölunnar „10.000“ í 1. og 2. tölul. 7. mgr. kemur: 15.000.
     j.      Í stað tölunnar „10.000“ í 3. tölul. 7. mgr. kemur: 15.000.
     k.      3. tölul. 7. mgr. fellur brott.
     l.      Við bætast fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Við innflutning og skattskylda sölu nýs rafmagns- eða vetnisbifhjóls, létts bifhjóls sem knúið er rafmagni eða reiðhjóls er heimilt á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 að fella niður virðisaukaskatt eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki eins og nánar er kveðið á um í ákvæði þessu. Ákvæðið skal jafnframt gilda um niðurfellingu virðisaukaskatts við innflutning og fyrstu sölu notaðs rafmagns- eða vetnisbifhjóls enda sé ökutækið þriggja ára eða yngra á innflutningsdegi og söludegi miðað við fyrstu skráningu.
                  Tollyfirvöldum er heimilt við tollafgreiðslu að fella niður virðisaukaskatt eftir því sem nánar segir:
              1.      Af rafmagns- eða vetnisbifhjóli að hámarki 1.560.000 kr. Bifhjólið skal skráð sem bifhjól í ökutækjaskrá, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, vera eingöngu knúið rafmagni eða vetni og falla undir vöruliði 8703, 8704 eða 8711 í tollskrá.
              2.      Af léttu bifhjóli eða reiðhjóli sem knúið er rafmagni að hámarki 96.000 kr. Létt bifhjól eða reiðhjól skal falla undir b-lið 28. tölul. eða b-lið 30. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vörulið 8711 í tollskrá. Létt bifhjól skal vera skráð sem létt bifhjól í ökutækjaskrá, sbr. 28. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019.
              3.      Af reiðhjóli með stig- eða sveifarbúnaði og öðrum tegundum reiðhjóla að hámarki 48.000 kr. Reiðhjól skal falla undir a- eða c-lið 30. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vöruliði 8711 eða 8712 í tollskrá.
                  Við skattskylda sölu bifhjóls, létts bifhjóls og reiðhjóls er skattaðila heimilt að undanþiggja frá skattskyldri veltu fjárhæð eins og nánar segir:
              1.      Af rafmagns- eða vetnisbifhjóli að hámarki 6.500.000 kr. Bifhjólið skal skráð sem bifhjól í ökutækjaskrá, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, vera eingöngu knúið rafmagni eða vetni og falla undir vöruliði 8703, 8704 eða 8711 í tollskrá.
              2.      Af léttu bifhjóli eða reiðhjóli sem knúið er rafmagni að hámarki 400.000 kr. Létt bifhjól eða reiðhjól skal falla undir b-lið 28. tölul. eða b-lið 30. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vörulið 8711 í tollskrá. Létt bifhjól skal vera skráð sem létt bifhjól í ökutækjaskrá, sbr. 28. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019.
              3.      Af reiðhjóli með stig- eða sveifarbúnaði og öðrum tegundum reiðhjóla að hámarki 200.000 kr. Reiðhjól skal falla undir a- eða c-lið 30. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vöruliði 8711 eða 8712 í tollskrá.
                  Nýti skattaðili sér þessa heimild ber honum samhliða skilum á virðisaukaskattsskýrslu að tilkynna ríkisskattstjóra á hverju uppgjörstímabili um að slík sala hafi átt sér stað á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

2. gr.

    Við lögin bætast þrjú ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    a. (XXXII.)
    Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 42. gr. er á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 heimilt að endurgreiða byggjendum íbúðarhúsnæðis 100% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað við uppsetningu hleðslustöðvar fyrir bifreiðar í eða við íbúðarhúsnæði. Jafnframt er heimilt á sama tímabili að endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis 100% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna vegna uppsetningar hleðslustöðvar fyrir bifreiðar í eða við íbúðarhúsnæði. Að öðru leyti gilda ákvæði 2. mgr. 42. gr. á umræddu tímabili.
    Á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 er heimilt að endurgreiða virðisaukaskatt vegna kaupa á hleðslustöð fyrir bifreiðar til uppsetningar í eða við íbúðarhúsnæði. Sækja skal um endurgreiðslu samkvæmt ákvæði þessu á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
    Samanlögð fjárhæð styrks og endurgreidds virðisaukaskatts frá opinberum aðilum vegna uppsetningar og/eða kaupa á hleðslustöð skal ekki vera hærri en heildarfjárhæð vinnu við slíka uppsetningu og/eða kaup. Gera skal grein fyrir slíkum styrkjum við framlagningu umsóknar um endurgreiðslu.

    b. (XXXIII.)
    Útleiga á skráningarskyldu ökutæki sem fallið hefur undir ívilnun á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XXIV er að fullu undanþegin skattskyldri veltu að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
     a.      Leigusali er handhafi leyfis til að stunda eignaleigu eða fjármögnunarleigu skv. 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. og 3. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, eða starfsleyfis til rekstrar ökutækjaleigu skv. 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015, og uppfyllir að öðru leyti skilyrði laga þessara.
     b.      Virðisaukaskattur hefur verið felldur niður eða talinn til undanþeginnar veltu samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XXIV við kaup eða innflutning leigusala á ökutækinu.
    Nýti skattaðili sér þessa heimild vegna skattskyldrar sölu ber honum samhliða skilum á virðisaukaskattsskýrslu að tilkynna ríkisskattstjóra á hverju uppgjörstímabili um að slík útleiga hafi átt sér stað á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
    Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2023. Útleiga skráningarskylds ökutækis samkvæmt ákvæði þessu sem fer fram eftir gildistöku þess telst til undanþeginnar veltu án tillits til dagsetningar leigusamnings. Fari útleiga skráningarskylds ökutækis samkvæmt ákvæði þessu fram eftir 31. desember 2023 skal hún teljast til virðisaukaskattsskyldrar veltu samkvæmt lögum þessum án tillits til dagsetningar leigusamnings.

    c. (XXXIV.)
    Á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 skal við innflutning og skattskylda sölu nýrrar hópbifreiðar í almenningsakstri sem eingöngu er knúin metani, metanóli, rafmagni eða vetni sem orkugjafa fella niður virðisaukaskatt af söluverði eða telja það til undanþeginnar veltu. Ákvæði þetta skal jafnframt gilda um niðurfellingu virðisaukaskatts við innflutning og fyrstu sölu notaðrar hópbifreiðar í almenningsakstri sem nýtir eingöngu metan, metanól, rafmagn eða vetni sem orkugjafa enda sé ökutækið þriggja ára eða yngra á innflutningsdegi og söludegi miðað við fyrstu skráningu.
    Það er skilyrði undanþágu að bifreiðin falli undir 24. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019. Nýti skattaðili sér þessa heimild ber honum samhliða skilum á virðisaukaskattsskýrslu að tilkynna ríkisskattstjóra á hverju uppgjörstímabili um að slík sala hafi átt sér stað á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er óheimilt að fella niður virðisaukaskatt eða telja fjárhæð til undanþeginnar veltu af hópbifreiðum í almenningsakstri frá og með sjötta virka degi næsta almanaksmánaðar eftir að samtals 120 slíkar bifreiðar hafa verið skráðar á ökutækjaskrá.

II. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
3. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. og b-liðar 4. tölul. 37. gr. skal lögaðila eða sjálfstætt starfandi einstaklingi sem stundar atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi heimilt á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 að fyrna skráningarskylt ökutæki að fullu á kaupári þess niður að niðurlagsverði eignar, sbr. 42. gr., að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
     a.      Skráningarskylt ökutæki sé eingöngu knúið metani, metanóli, rafmagni eða vetni og sé að öllu leyti nýtt í skattskyldri starfsemi lögaðila eða sjálfstætt starfandi einstaklings.
     b.      Ökutæki sé skráningarskylt og falli undir 47. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019.


4. gr.

    Lög þessi öðlast gildi sem hér segir:
     a.      A-, c-, e-, g- og k-liður 1. gr. öðlast gildi 1. janúar 2023.
     b.      B-, d- og f-liður 1. gr. öðlast gildi 1. júlí 2020.
     c.      H–j-liður 1. gr. öðlast þegar gildi.
     d.      L-liður 1. gr. öðlast gildi 1. janúar 2020. Þrátt fyrir það skulu fjárhæðarmörk fram til 1. júlí 2020 vera 1.440.000 kr. skv. 1. tölul. 2. mgr. og 6.000.000 kr. skv. 1. tölul. 3. mgr.
     e.      A-liður 2. gr. öðlast gildi 1. janúar 2020.
     f.      B- og c-liður 2. gr. öðlast gildi 1. júlí 2020.
     g.      3. gr. öðlast gildi 1. júlí 2020.