Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 810, 150. löggjafarþing 62. mál: landlæknir og lýðheilsa (skrá um heilabilunarsjúkdóma).
Lög nr. 145 22. desember 2019.

Lög um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, með síðari breytingum (skrá um heilabilunarsjúkdóma).


1. gr.

     Við 2. mgr. 8. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Skrá um heilabilunarsjúkdóma.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 17. desember 2019.