Ferill 547. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 902 — 547. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um hvata fyrir iðnaðar- og þjónustufyrirtæki og líffræðilega fjölbreytni.
Frá Unu Hildardóttur.
1. Er hafin vinna í ráðuneytinu við að skapa jákvæða hvata fyrir iðnaðar- og þjónustufyrirtæki til að verðlauna þau fyrir breytingar á starfsháttum sem stuðla að verndun og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni?
2. Er hafin vinna í ráðuneytinu við að útrýma skaðlegum hvötum sem gerir iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum kleift að stunda starfsemi sem skaðar líffræðilega fjölbreytni?
3. Hver eru áform ráðherra í þessum efnum?
Skriflegt svar óskast.