Ferill 620. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1046  —  620. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fullgildingu valkvæðs viðauka við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Frá Ágústi Ólafi Ágústssyni.


    Hvernig miðar og hvernig er háttað undirbúningi fullgildingar valkvæðs viðauka við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. þingsályktun nr. 61/145 frá 20. september 2016?