Ferill 860. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1515 — 860. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um fjölda umsókna um starfsleyfi.
Frá Jóni Gunnarssyni.
Hversu margar umsóknir eru í vinnslu eða bíða úrvinnslu hjá stofnunum og úrskurðarnefndum á málefnasviði ráðherra um álit og leyfi til þess að hefja undirbúning og hönnun, framkvæmdir og/eða atvinnurekstur? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum og úrskurðarnefndum og upplýsingum um hvenær umsóknirnar bárust.
Skriflegt svar óskast.