Ferill 863. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1518 — 863. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um lögbundin verkefni safna.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinna Gljúfrasteinn – hús skáldsins, Kvikmyndasafn Íslands, Listasafn Einars Jónssonar, Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Þjóðskjalasafn Íslands, Hljóðbókasafn Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn?
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna fyrrgreindra safna, sundurliðað eftir söfnum, og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Skriflegt svar óskast.