Ferill 869. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1524  —  869. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um lögbundin verkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Sinfóníuhljómsveit Íslands?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.