Ferill 883. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1542  —  883. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um heimilisofbeldi.

Frá Sigurði Páli Jónssyni.


     1.      Hversu margar tilkynningar um heimilisofbeldi hafa borist lögreglu á þessu ári?
     2.      Hvernig hefur þróun á fjölda tilkynninga verið síðustu ár?
     3.      Hyggst ráðherra fara í átak gegn heimilisofbeldi og ef svo er, með hvaða hætti?