Ferill 813. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1545  —  813. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa (framlenging hlutabótaleiðar).

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gissur Pétursson, Bjarnheiði Gautadóttur og Evu Margréti Kristinsdóttur frá félagsmálaráðuneytinu, Guðrúnu Þorleifsdóttur, Gunnar Björnsson og Benedikt Hallgrímsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Unni Sverrisdóttur og Sverri Berndsen frá Vinnumálastofnun, Ragnar Árnason frá Samtökum atvinnulífsins, Drífu Snædal og Halldór Grönvold frá Alþýðusambandi Íslands, Þórunni Sveinbjarnardóttur og Karen Ósk Pétursdóttur frá Bandalagi háskólamanna, Hrannar Má Gunnarsson frá BSRB, Indriða H. Þorláksson, Bryndísi Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra, Pétur Gauta Valgeirsson og Valdimar Leó Friðriksson frá Leiðsögn – félagi leiðsögumanna, Erling Jóhannesson frá Bandalagi íslenskra listamanna, Sigtrygg Baldursson og Cheryl K. Ang frá Útflutningsstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN), Gunnar Hrafnsson frá Félagi íslenskra hljómlistamanna, Birnu Hafstein frá Félagi íslenskra leikara og Sviðslistasambandi Íslands, Elínu Ölmu Arthursdóttur og Ingvar J. Rögnvaldsson frá Skattinum, Jóhannes Þór Skúlason frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum verslunar og þjónustu, Valgerði Rún Benediktsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Daníel Orra Einarsson, Árna Árnason og Snæbjörn Jörgensen frá Bifreiðastjórafélaginu Frama og Helgu Þórisdóttur frá Persónuvernd og Skúla Eggert Þórðarson ríkisendurskoðanda og Guðrúnu Jennýju Jónsdóttur, Hrafnhildi Ragnarsdóttur og Sigríði Kristjánsdóttur frá Ríkisendurskoðun.
    Umsagnir bárust frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi íslenskra listamanna, BSRB, Indriða H. Þorlákssyni, Landssamtökum íslenskra stúdenta, Nemendafélagi Háskólans á Bifröst, Persónuvernd, Samtökum iðnaðarins, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum atvinnulífsins, Sindra Steini Marínóssyni, f.h. Richmond Raggas Landayan, Hlyns Kristjánssonar og Alfreðs Kort Kárasonar, Stúdentaráði Háskóla Íslands og Viðskiptaráði Íslands.
    Frumvarpið er liður í aðgerðum stjórnvalda vegna þeirra efnahagslegu áfalla sem heimsfaraldur COVID-19 hefur í för með sér. Frumvarpið var lagt fram samhliða frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar í uppsagnarfresti og frumvarpi dómsmálaráðherra um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja.

Efni frumvarpsins.
Framlenging hlutabótaleiðar.
    Með frumvarpinu er lagt til að hlutabótaleiðin, sem kveðið er á um í ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, verði framlengd með frekari skilyrðum til 1. september 2020. Lagt er til að lágmarksstarfshlutfall launamanns til nýtingar á úrræðinu verði óbreytt til 1. júlí 2020 en verði 50% á tímabilinu 1. júlí til og með 31. ágúst 2020.
    Meðal skilyrða sem lagt er til að sett verði fyrir áframhaldandi nýtingu hlutabótaleiðarinnar er nánari afmörkun á skilyrðinu um tímabundinn samdrátt í starfsemi vinnuveitanda, auk þess sem vinnuveitandi staðfesti að tiltekin skilyrði er varða starfsemi hans séu uppfyllt.
    Jafnframt eru lagðar til auknar heimildir Vinnumálastofnunar til gagnaöflunar og mælt fyrir um viðurlög við brotum á skilyrðum hlutabótaleiðarinnar.
    Þá er lagt til að gildistími ákvæðis til bráðabirgða XIV í lögum um atvinnuleysistryggingar verði framlengdur til 1. september 2020. Þannig teljist sjálfstætt starfandi einstaklingur uppfylla skilyrði f- og g-liðar 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sem varða það skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingu sjálfstætt starfandi einstaklings að hann hafi stöðvað rekstur, hafi hann tilkynnt Skattinum um verulegan samdrátt í rekstri sínum sem leiðir til tímabundinnar stöðvunar á rekstri. Þá er lagt til að sjálfstætt starfandi einstaklingar sem hafa fengið atvinnuleysisbætur greiddar samkvæmt ákvæðinu á tímabilinu 15. mars til 31. maí 2020 öðlist rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2020 að öðrum skilyrðum uppfylltum.
    Loks er lögð til samsvarandi framlenging gildistíma í ákvæði til bráðabirgða III í lögum um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003.

Umfjöllun nefndarinnar.
Skilyrði um ótakmarkaða skattskyldu og skil á CFC-skýrslu.
    Meðal skilyrða fyrir nýtingu hlutabótaleiðarinnar samkvæmt frumvarpinu er að vinnuveitandi staðfesti að hann beri ótakmarkaða skattskyldu hér á landi skv. 1. eða 2. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, og að hann hafi staðið skil á skýrslu um eignarhald á CFC-félagi. Við umfjöllun nefndarinnar kom til umræðu hvort framangreind skilyrði girtu nægilega vel fyrir að fyrirtæki sem notfæra sér svokölluð skattaskjól til að forðast skattgreiðslur, sem með réttu ættu að renna til íslenska ríkisins, geti nýtt sér þá aðstoð stjórnvalda sem frumvarpið mælir fyrir um. Með því að gera kröfu um skil á CFC-skýrslum er gert ráð fyrir því að vinnuveitandi hafi upplýst um eignarhald sitt og eftir atvikum sætt skattlagningu af hagnaði félags í beinni eða óbeinni eigu hans á lágskattasvæði.
    Meðal breytingartillagna meiri hlutans er að bæta því við í upptalningu á þeim gögnum sem vinnuveitandi þarf að hafa skilað til Skattsins að hann hafi upplýst um raunverulega eigendur, sbr. lög um skráningu raunverulegra eigenda. Meiri hlutinn bendir á að fyrirtæki sem nýta sér skattaskjól til þess að forðast skattgreiðslur, sem með réttu ættu að renna til íslenska ríkisins, gera það í trássi við íslensk lög. Vinnuveitendur sem staðfesta að þeir hafi staðið skil á framangreindum gögnum ábyrgjast einnig að þær upplýsingar sem gerð er grein fyrir séu réttar. Eðli málsins samkvæmt verður ekki ráðin lausn á þeim vanda sem yfirvöld standa frammi fyrir í þeim efnum í þessu máli. Eigi að síður er ljóst að með því að nýta sér stuðningsúrræði stjórnvalda eru fyrirtæki útsett fyrir því eftirliti sem þeim úrræðum fylgir og þeim viðurlögum sem mælt er fyrir um í frumvarpinu, veiti þau vísvitandi rangar upplýsingar.

Launatengd gjöld.
    Í 2. mgr. c-liðar 1. gr. frumvarpsins er skilyrði fyrir nýtingu hlutabótaleiðarinnar að vinnuveitandi hafi staðið í skilum með launatengd gjöld og opinber gjöld á þeim degi er launamaður sækir um atvinnuleysisbætur samkvæmt ákvæðinu eða staðfestir áframhaldandi nýtingu á rétti sínum. Nefndinni bárust ábendingar þess efnis að skýra þyrfti nánar inntak hugtaksins „launatengd gjöld“. Meiri hlutinn áréttar að með launatengdum gjöldum er átt við staðgreiðslu opinberra gjalda, iðgjöld og mótframlag í lífeyrissjóð, stéttarfélagsgjöld og tryggingagjald.

Mánaðarlaun eigenda og æðstu stjórnenda vinnuveitanda.
    Í frumvarpinu er lagt til að skilyrði fyrir nýtingu hlutabótaleiðarinnar verði m.a. að vinnuveitandi skuldbindi sig til þess að greiða ekki eigendum eða æðstu stjórnendum mánaðarlaun sem nema hærri fjárhæð en 3 millj. kr. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að einhvers óskýrleika kynni að gæta varðandi inntak hugtaksins „mánaðarlaun“, sérstaklega í ljósi þess að viðmið um heildarlaun starfsmanns er sérstaklega skilgreint í ákvæðinu. Ekki er að finna skýringu á hugtakinu í greinargerð.
    Meiri hlutinn tekur fram að hugtakið „mánaðarlaun“ ber að túlka til samræmis við önnur ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar sem skilgreina laun launamanns. Þannig verði til mánaðarlauna að teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990.

Staða sjálfstætt starfandi á eigin kennitölu.
    Nefndin ræddi stöðu sjálfstætt starfandi einstaklinga sem standa utan hlutabótaleiðarinnar vegna þess að þeir eru með rekstur á eigin kennitölu. Til umræðu komu sjónarmið þess efnis að töluverður munur væri á aðstæðum þeirra sem væru með eigin rekstur í félagi, og gætu nýtt sér hlutabótaleiðina, og sjálfstætt starfandi á eigin kennitölu sem þyrftu að skrá sig á atvinnuleysisbætur. Þá kom einnig fram það sjónarmið að sjálfstætt starfandi einstaklingar sem starfa á eigin kennitölu gangi á rétt sinn til atvinnuleysisbóta umfram aðra hópa með því að fá greiddar tekjutengdar atvinnuleysisbætur á sama tíma og aðrir fái hlutabætur, sem koma ekki til skerðingar á öðrum rétti til atvinnuleysisbóta.
    Meiri hlutinn bendir á að forsenda fyrir greiðslu hlutabóta samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, er að ráðningarsamband sé til staðar milli launamanns og vinnuveitanda, þar sem vinnuveitandi greiði fyrir það vinnuframlag launamanns sem innt er af hendi og launamaður fái á móti á móti greiðslu frá Atvinnuleysistryggingasjóði vegna skerðingar á starfshlutfalli. Mótframlag vinnuveitanda getur myndað drjúgan hluta af mánaðargreiðslum til starfsmanns sem nýtir hlutabótaleiðina, en í tilviki þess sem starfar á eigin kennitölu er engum slíkum vinnuveitanda til að dreifa.
    Í eftirfarandi töflu má sjá hvernig greiðslum atvinnuleysisbóta er háttað, annars vegar fyrir launamann sem hefur minnkað starfshlutfall sitt um 75% og hins vegar fyrir sjálfstætt starfandi sem fellur í starfsgreinaflokk D(2) í viðmiðunarreglum Skattsins um reiknað endurgjald.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Þá er í frumvarpinu lagt til að þeir sjálfstætt starfandi einstaklingar sem hafa fengið greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XIV í lögum um atvinnuleysistryggingar skuli eiga rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2020. Með því móti er gert ráð fyrir því að sjálfstætt starfandi einstaklingar muni njóta tekjutengdra atvinnuleysisbóta út tímabilið.
    Meiri hlutinn er jafnframt meðvitaður um að þeir sem eru nú á hefðbundnum atvinnuleysisbótum, sem rekja megi til samdráttar í íslensku atvinnulífi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, ganga nú á rétt sinn til atvinnuleysisbóta í kerfinu. Meiri hlutinn beinir því til félagsmálaráðuneytisins að fylgjast sérstaklega með þessum hópi og taka til skoðunar síðar hvort tilefni verði til að framlengja það tímabil sem atvinnuleysisbætur eru greiddar umfram þá 30 mánuði sem tryggðir eru skv. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Endurskoðun úrræðisins og frekari aðgerðir.
    Í nefndaráliti velferðarnefndar um 664. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa (minnkað starfshlutfall), þegar hlutabótaleiðinni var komið á, benti nefndin á að mikilvægt væri að taka mið af þeirri reynslu sem fengist á nýtingu úrræðisins. Frumvarp þetta er lagt fram í ljósi fenginnar reynslu og eru lagðar til nokkuð umfangsmiklar breytingar á skilyrðum fyrir nýtingu úrræðisins. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að áfram verði fylgst með áhrifum þeirra aðgerða sem mælt er fyrir um. Taka verður upplýsta ákvörðun áður en úrræðið rennur sitt skeið um það hvort frekari aðgerða sé þörf til þess að bregða við þeim samdrætti sem er á íslenskum vinnumarkaði.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um hlutabótaleiðina.
    Við umfjöllun um málið fékk nefndin kynningu á skýrslu Ríkisendurskoðunar, Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Í skýrslunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að eftirlit sé haft með nýtingu ríkisfjár og að staðinn sé vörður um hagsmuni ríkissjóðs og að útgreiðslur úr honum taki mið af vilja löggjafans. Með þeim skilyrðum sem lögð eru til í frumvarpinu og með þeim breytingum sem meiri hlutinn leggur til er leitast við að tryggja að úrræðið nýtist best þeim sem á því þurfa að halda, þ.e. starfsmönnum fyrirtækja sem hafa þurft að draga saman starfsemi vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi eftirlits og þess að vinnuveitendur sem notfæra sér úrræðið séu upplýstir um ábyrgð sína og viðurlög við brotum. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, m.a. í samstarfi við skattyfirvöld, að tryggja þessa þætti.

Breytingartillögur meiri hlutans.
Framsetning ákvæðis til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar.
    Meiri hlutinn telur eðlilegt að í stað þess að breytingar verði gerðar á ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar verði hlutabótaleiðin, eins og lagt er til að hún verði í frumvarpi þessu, sett fram í nýju bráðabirgðaákvæði í lögunum. Meiri hlutinn leggur því til að 1. gr. frumvarpsins falli brott og í stað hennar komi ný grein sem mæli fyrir um nýtt ákvæði til bráðabirgða í lögunum. Í því ákvæði verði mælt fyrir um hlutabótaleiðina, eins og hún gildir á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2020 og með þeim skilyrðum sem um hana gilda. Á sama tíma eru lagðar til efnislegar breytingar sem gerð verður nánari grein fyrir hér á eftir, sem og breytingar á framsetningu sem ætlað er að auka skýrleika laganna.

Staðfesting á áframhaldandi nýtingu hlutabótaleiðar.
    Í 1. mgr. c-liðar 1. gr. frumvarpsins segir að launamenn sem hafi nýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta samkvæmt ákvæðinu skuli staðfesta hjá Vinnumálastofnun fyrir 10. júní 2020 áframhaldandi nýtingu á þeim rétti. Vinnumálastofnun benti nefndinni á að sá tími sem gæfist frá gildistöku frumvarpsins og þar til launamenn ættu að staðfesta áframhaldandi nýtingu úrræðisins kynni að vera of skammur. Að höfðu samráði við ráðuneytið leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að hyggist launamaður, sem nýtt hefur úrræði til greiðslu atvinnuleysisbóta vegna minnkaðs starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XIII, á tímabilinu 15. mars til og með 31. maí 2020, að nýta úrræðið samkvæmt hinni nýju hlutabótaleið skuli hann tilkynna Vinnumálastofnun um það fyrir 30. júní 2020.

Skilyrði um tímabundinn samdrátt í starfsemi vinnuveitanda.
    Í 3. tölul. a-liðar 1. gr. frumvarpsins er tímabundinn samdráttur í starfsemi vinnuveitanda skilgreindur þannig að miðað sé við að meðaltal mánaðartekna vinnuveitanda frá 1. mars 2020 og til þess dags er launamaður sækir um atvinnuleysisbætur samkvæmt ákvæðinu hafi dregist saman um a.m.k. 25% miðað við eitt af fjórum tímabilum sem þar eru tilgreind. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að rekstur margra fyrirtækja hefði verið að mestu leyti í eðlilegu horfi fyrri hluta marsmánaðar og verulegra áhrifa vegna faraldursins ekki farið að gæta fyrr en fyrstu samkomutakmarkanir tóku gildi 16. mars 2020. Skilyrði um að fyrirtæki hefðu orðið fyrir tekjufalli frá 1. mars 2020 kynni því að útiloka fyrirtæki sem hefðu haft góðan rekstrargrundvöll allt fram til 16. mars 2020, en hefðu síðar orðið fyrir samdrætti í rekstri. Þess ber einnig að geta að hlutabótaleiðin, samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar, tók fyrst gildi 15. mars 2020.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og leggur til að miðað verði við meðaltal mánaðartekna vinnuveitanda frá 15. mars 2020 og til þess dags er launamaður sækir um atvinnuleysisbætur samkvæmt ákvæðinu. Þannig verður miðað við meðaltal mánaðartekna frá því að áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru og aðgerða stjórnvalda fór fyrst að gæta.
    Þá leggur meiri hlutinn til að framangreindu skilyrði verði komið fyrir á öðrum stað í hinu nýja ákvæði, þannig að það verði talið upp meðal annarra skilyrða sem fjalla um starfsemi vinnuveitanda. Þeirri breytingu er ætlað að auka skýrleika ákvæðisins.

Skilyrði um skil á gögnum til Skattsins.
    Í 2. mgr. c-liðar 1. gr. frumvarpsins eru lögð til skilyrði er varða starfsemi vinnuveitanda. Þegar launamaður staðfestir hjá Vinnumálastofnun áframhaldandi nýtingu hlutabótaleiðarinnar, frá og með 1. júní 2020, eða launamaður sækir um úrræðið í fyrsta skipti skal vinnuveitandi staðfesta að hann uppfylli þar til greind skilyrði. Þar á meðal eru skilyrði um að vinnuveitandi beri ótakmarkaða skattskyldu hér á landi og hafi staðið skil á skýrslu um eignarhald á CFC-félagi, sbr. 10. gr. reglugerðar um skattlagningu vegna eignarhalds í lögaðilum á lágskattasvæðum, nr. 1102/2013, eftir því sem við á. Nefndinni var bent á að með framangreindum skilyrðum væri gengið skemur en í öðrum úrræðum stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, þar sem m.a. væri gerð sú krafa að viðkomandi hefði upplýst um raunverulega eigendur, sbr. lög um skráningu raunverulegra eigenda.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og bendir á að þótt Vinnumálastofnun sé falið eftirlit með framkvæmd ákvæðisins muni eftirlitið byggjast á gögnum sem ber að skila til Skattsins. Mörg þeirra skilyrða sem lögð eru til fyrir nýtingu úrræðisins verða ekki staðreynd fyrr en eftir á heldur verður við greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt ákvæðinu byggt á því að vinnuveitandi staðfesti að viðkomandi skilyrði séu uppfyllt. Eftirlit með því hvort vinnuveitandi uppfylli skilyrðin í raun mun því að miklu leyti fara fram eftir á. Með hliðsjón af því verður að gera þá kröfu til vinnuveitanda að hann staðfesti að hann hafi staðið skil á öllum gögnum og upplýsingum sem honum ber lögum samkvæmt að hafa skilað til Skattsins á umsóknardegi, m.a. skuli hann hafa upplýst um raunverulega eigendur, sbr. lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019.
    Meiri hlutinn leggur til breytingu á framangreindu skilyrði þess efnis að vinnuveitandi skuli staðfesta að hann hafi staðið skil á skattframtali og fylgigögnum þess, þ.m.t. skýrslu um eignarhald á CFC-félagi, sbr. 10. gr. reglugerðar um skattlagningu vegna eignarhalds í lögaðilum á lágskattasvæðum, nr. 1102/2013, og öðrum skýrslum og skilagreinum, svo sem staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum, til Skattsins síðastliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða síðan hann hóf starfsemi ef það var síðar. Að auki skuli hann, eftir því sem við á og á sama tímabili, hafa staðið skil á ársreikningum, sbr. lög um ársreikninga, nr. 3/2006, og upplýst um raunverulega eigendur, sbr. lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019.

Skilyrði er lúta að ráðstöfunum vinnuveitenda.
    Í 3. málsl. 2. mgr. c-liðar 1. gr. frumvarpsins segir að vinnuveitandi skuli staðfesta að hann hafi ekki í hyggju, á tímabilinu 1. júní 2020 til og með 31. maí 2023, að gera tilteknar ráðstafanir sem og að greiða eigendum sínum eða æðstu stjórnendum mánaðarlaun sem nema hærri fjárhæð en 3 millj. kr.
    Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að ákveðin vandkvæði væru bundin við orðalag ákvæðisins eins og það væri fram sett. Meðal annars var bent á að vinnuveitanda bæri einungis að staðfesta að hann hygðist ekki ráðast í tilteknar ráðstafanir en ekki væri skýrt að um raunverulega skuldbindingu væri að ræða. Einnig væri íþyngjandi fyrir vinnuveitendur að geta ekki nýtt sér úrræðið hafi þeir tekið ákvörðun um úthlutun arðs, lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa eða kaup eigin hluta fyrir 1. júní 2020 en ráðstöfunin ekki komið til framkvæmda fyrr en eftir þann tíma.
    Meiri hlutinn leggur því til breytingu á ákvæðinu þannig að skilyrði fyrir nýtingu úrræðisins verði að vinnuveitandi hafi ekki eftir 1. júní 2020 ákvarðað úthlutun arðs, lækkun hlutafjár, kaup eigin hluta, innt af hendi aðra greiðslu til eiganda á grundvelli eignaraðildar hans, greitt óumsaminn kaupauka, greitt af víkjandi láni fyrir gjalddaga eða veitt eiganda eða aðila nákomnum eiganda lán eða annað fjárframlag sem ekki varðar öflun, tryggingu eða viðhald rekstrartekna eða greiða eigendum sínum eða æðstu stjórnendum mánaðarlaun sem nema hærri fjárhæð en 3 millj. kr. til hvers og eins. Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á því tímabili sem skuldbinding vinnuveitanda gildir. Leggur meiri hlutinn til að vinnuveitandi skuldbindi sig til þess að gera enga framangreinda ráðstöfun fyrir 1. janúar 2022 og til að ráðstafa ekki til hluthafa með arðgreiðslu, lækkun hlutafjár eða kaupum eigin hluta hagnaði sem myndast á rekstrarári sem hefst 1. janúar 2020 eða síðar, fyrr en í fyrsta lagi eftir 1. janúar 2023.

Takmörkun á kaupum á eigin bréfum.
    Á meðal skilyrða fyrir því að launamenn geti nýtt sér úrræðið er að vinnuveitandi hyggist ekki kaupa eigin hluti frá 1. júní 2020 og skuldbindi sig til að gera það ekki fyrr en 31. maí 2023. Sams konar skilyrði er í frumvarpi til laga um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti (811. mál), þótt framsetningin sé með öðrum hætti.
    Að framan eru raktar breytingar á orðalagi og framsetningu framangreinds skilyrðis. Sú breyting sem lögð er til er í samræmi við breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarp til laga um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (þskj. 1497) er bent á að atvik kunni að vera með þeim hætti að félag hafi í kaupréttarsamningi skuldbundið sig til að kaupa hluti starfsmanns við starfslok og að í slíku tilviki geti verið óeðlilegt að bann við kaupum á eigin hlutum girði fyrir efndir slíkra samninga. Í þeim tilvikum má gera ráð fyrir að slík ráðstöfun hafi verið gerð fyrir 1. júní 2020 enda hafi samningur um kaup hluta við starfslok verið gerður við það tímamark. Sú breyting sem lögð er til á framsetningu ákvæðisins hefur það í för með sér að fyrirtæki sem hafa skuldbundið sig með framangreindum hætti geta staðið við áður gerða samninga.

Eftirlit Vinnumálastofnunar eftir 1. september 2020.
    Í d-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar verði breytt þannig að það gildi frá 1. júní 2020 í stað 15. mars 2020, með þeim breytingum sem lagðar eru til á ákvæðinu í frumvarpinu, með þeirri undanþágu sem fram kemur í e-lið 1. gr. frumvarpsins. Nefndinni var bent á að sú framsetning á gildistíma ákvæðisins sem lögð er til í frumvarpinu hefði það í för með sér að heimildir Vinnumálastofnunar til eftirlits og til þess að beita þeim viðurlögum sem mælt er fyrir um falli einnig úr gildi frá og með 1. september 2020. Líkt og rakið er að framan er gert ráð fyrir því að eftirlit með því hvort viðkomandi vinnuveitendur uppfylli þau skilyrði sem lögð eru til muni að miklu leyti fara fram eftir að greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til launamanns hafa verið inntar af hendi.
    Líkt og að framan greinir leggur meiri hlutinn til að hlutabótaleiðin verði framlengd með setningu nýs bráðabirgðaákvæðis. Breytingartillaga meiri hlutans gerir ráð fyrir því að sú afmörkun sem lögð er til á gildistíma ákvæðisins í frumvarpinu verði felld brott. Þess í stað verði skýrt afmarkað á hvaða tímabili heimilt sé að greiða atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðisins, þ.e. frá 1. júní til og með 31. ágúst 2020. Þá er sérstaklega tilgreint í þeim ákvæðum sem skulu samkvæmt frumvarpinu vera afturvirk að þau gildi einnig um atvinnuleysisbætur sem greiddar hafa verið á tímabilinu 15. mars til og með 30. júní 2020 á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XIII í lögum um atvinnuleysistryggingar.

Birting lista yfir vinnuveitendur sem hafa nýtt sér hlutabótaleiðina.
    Í frumvarpinu er lagt til að Vinnumálastofnun verði heimilt að birta opinberlega lista yfir vinnuveitendur sem hafa nýtt sér hlutabótaleiðina. Stofnunin hefur nú þegar birt slíkan lista en takmarkað hann við fyrirtæki sem nýttu hlutabótaleiðina fyrir sex eða fleiri launamenn. Fyrir nefndinni var bent á að birting á slíkum upplýsingum bryti ekki gegn lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, þar sem upplýsingar um lögaðila, einar og sér, teldust ekki vera persónuupplýsingar. Einnig væri um að ræða ráðstöfun á opinberum fjármunum og því væri eðlilegt að upplýst væri um þá aðila sem hefðu fengið slíkar greiðslur. Í því sambandi kom fram að Vinnumálastofnun kynni að vera skylt að veita slíkar upplýsingar á grundvelli 13. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
    Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið að eðlilegt og réttmætt sé að upplýsa um ráðstöfun á opinberum fjármunum til lögaðila með þeim hætti að birta lista yfir þá lögaðila sem hafi fengið slíkar greiðslur. Meiri hlutinn leggur þó áherslu á að gæta þurfi að því að birting lista yfir fyrirtæki með fáum launamönnum geti leitt til þess að hægur vandi verði að greina hvaða launamenn þeirra fyrirtækja kunni að hafa fengið greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt ákvæðinu. Með slíkri upplýsingagjöf geti því verið auðséð hvaða starfsmenn minni fyrirtækja séu á atvinnuleysisskrá. Meiri hlutinn leggur því til að miðað verði við þá framkvæmd sem viðhöfð hefur verið hjá Vinnumálastofnun og að heimilt verði að birta lista yfir fyrirtæki sem nýtt hafa úrræði ákvæðisins fyrir sex eða fleiri launamenn.
    Jafnframt leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki þarfnast skýringa.
    Með hliðsjón af framangreindu leggur meiri hlutinn til að málið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 27. maí 2020.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
frsm.
Ólafur Þór Gunnarsson. Ásmundur Friðriksson.
Halla Signý Kristjánsdóttir. Vilhjálmur Árnason.