Ferill 893. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1580  —  893. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögbundin verkefni dómstólasýslunnar.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir dómstólasýslan?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna dómstólasýslunnar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.