Ferill 897. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1584  —  897. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögbundin verkefni Fangelsismálastofnunar ríkisins.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Fangelsismálastofnun ríkisins?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Fangelsismálastofnunar ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.