Ferill 901. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1588  —  901. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögbundin verkefni þjóðkirkjunnar og Biskupsstofu.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna þjóðkirkjan og Biskupsstofa?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna þjóðkirkjunnar og Biskupsstofu og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.