Ferill 905. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1593  —  905. mál.




Fyrirspurn


til félags- og barnamálaráðherra um lán Íbúðalánasjóðs sem bera uppgreiðslugjald.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


     1.      Hversu mörg virk lán Íbúðalánasjóðs bera uppgreiðslugjald?
     2.      Á hvaða árabili voru slík lán í boði?
     3.      Hversu há eru lánin samtals?
     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir skilmálabreytingu þannig að það verði hagstæðara fyrir skuldara framangreindra lána að greiða þau upp?