Ferill 919. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1607  —  919. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um lögbundin verkefni Landgræðslunnar.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Landgræðslan?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Landgræðslunnar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.