Ferill 933. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1735  —  933. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um fjölda íbúða sem félög tengd Landsbankanum hf. eignuðust á tímabilinu 2008–2019.

Frá Ólafi Ísleifssyni.

    Hver er fjöldi fasteigna, skráðra sem íbúðarhúsnæði, sem hver eftirtalinna aðila varð eigandi að á tímabilinu 2008–2019 samkvæmt þinglýsingaskrám, að frátöldum fasteignum þar sem fyrri eigandi var lögaðili og að því gættu að einstakar fasteignir séu ekki tvítaldar, sundurliðað eftir aðilum, árum og í heild:
     1.      Landsbankinn – Fjárfesting hf., kt. 601099-2419,
     2.      Landsbankinn – Framtak hf., kt. 430299-2989,
     3.      Landsbankinn eignarhaldsfélag ehf., kt. 631204-3330,
     4.      Landsbankinn fasteignafélag, ehf., kt. 670303-4030,
     5.      Landsbankinn – Framtakssjóður ehf. kt. 621199-3239,
     6.      SP Fjármögnun hf., kt. 620295-2219,
     7.      Blámi fjárfestingafélag ehf., kt. 470301-3920,
     8.      Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf., kt. 530407-1790,
     9.      Eignarhaldsfélagið ehf., kt. 531106-1800,
     10.      Fasteignafélag Íslands ehf., kt. 430700-3590,
     11.      Fictor ehf., kt. 701299-3459,
     12.      Framkvæmdafélagið Hömlur ehf., kt. 460509-0330,
     13.      Grípir ehf., kt. 590101-2140,
     14.      H Akureyri ehf., kt. 601212-0720,
     15.      HÍ1 ehf., kt. 521009-1360,
     16.      Holtavegur 10 ehf., kt. 520171-0299,
     17.      Horn fjárfestingarfélag hf., kt. 511208-0250,
     18.      Horn Invest B.V., kt. 480306-9960,
     19.      Hótel Egilsstaðir ehf., kt. 601212-0800,
     20.      HÞR1 ehf., kt. 521009-1280,
     21.      Hömlur 1 ehf., kt. 630109-0860,
     22.      Hömlur 2 ehf., kt. 630109-0510,
     23.      Hömlur 3 ehf., kt. 440510-1670,
     24.      Hömlur B&T ehf., kt. 530298-3029,
     25.      Hömlur ehf., kt. 630109-0940,
     26.      Hömlur fyrirtæki ehf., kt. 630207-0610,
     27.      Hömlur þróunarfélag ehf., kt. 521009-1600,
     28.      Landsvaki ehf., kt. 700594-2549,
     29.      Laugavegsreitir ehf., kt. 460509-0410,
     30.      Lífsval ehf., kt. 531202-3090,
     31.      Lindir Resources ehf., kt. 610108-0910,
     32.      NIKEL ehf., kt. 660308-1720,
     33.      Reginn íbúðarhúsnæði ehf., kt. 521009-1440,
     34.      SL-2010 hf., kt. 600269-0549,
     35.      Smárabyggð ehf., kt. 690910-1280,
     36.      Span ehf., kt. 440107-0360,
     37.      Spvlet ehf., kt. 591110-0630,
     38.      Stenias ehf., kt. 461108-0670,
     39.      Tangabryggja ehf., kt. 540711-0460,
     40.      önnur félög sem eru eða hafa verið tengd Landsbankanum hf. vegna eignarhalds, stjórnunar eða sambærilegra atvika?

Skriflegt svar óskast.

Greinargerð.

    Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á 149. löggjafarþingi (815. mál) um fjölda fasteigna yfirtekinna af lánveitendum kom fram að ekki væri unnt að svara fyrirspurninni nema fyrir lægju kennitölur lánastofnana. Í fyrirspurn á yfirstandandi þingi (193. mál) var því spurt um fjölda yfirtekinna fasteigna sundurliðað eftir kennitölum einstakra aðila en af þeim fjölda sem kom fram í svari ráðherra mátti ráða að þær tölur gæfu ekki rétta mynd hvað varðar þann banka sem hér er spurt um. Því var ný fyrirspurn lögð fram (622. mál) og óskað eftir sömu upplýsingum sundurliðað eftir kennitölum einstakra dótturfélaga/útibúa, með fyrirvara um hvort sú talning væri fullkomlega tæmandi. Í svari dómsmálaráðherra kom fram að ráðherra teldi að málefni Landsbankans hf. eða lögaðila sem eru honum tengdir ættu ekki undir málefnasvið dómsmálaráðherra og að skilyrði 57. gr. þingskapa væri ekki fullnægt. Þar sem málefni fjármálastofnana eiga undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra og þar sem forseti Alþingis hefur, með undirskrift sinni, ákvarðað að fyrirspurnin uppfylli skilyrði 57. gr. laga um þingsköp Alþingis er fyrirspurnin hér lögð fram að nýju til fjármála- og efnahagsráðherra.