Ferill 778. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1789  —  778. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Verðlagsstofu skiptaverðs.



     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Verðlagsstofa skiptaverðs?
    Verðlagsstofa skiptaverðs starfar samkvæmt lögum nr. 13/1998, um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, sjá eftirfarandi slóð:
     www.althingi.is/lagas/150b/1998013.html.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Verðlagsstofu skiptaverðs og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Kostnaði er ekki deilt niður á hvert lögbundið verkefni í fjárlögum, heldur er gerð grein fyrir fjárheimildum vegna hvers málefnasviðs og málaflokks og þeim skipt niður í fjárveitingar til einstakra verkefna og ríkisaðila sem birtast í fylgiriti fjárlaga hverju sinni. Verðlagsstofa skiptaverðs heyrir undir málefnasvið 13 og málaflokk 13.10. Samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að stofnunin hafi til ráðstöfunar 49,4 millj. kr. til að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Allt ráðstöfunarféð kemur úr ríkissjóði.