Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1982, 150. löggjafarþing 34. mál: tekjuskattur (söluhagnaður).
Lög nr. 87 7. júlí 2020.
Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. er heimilt að dreifa söluhagnaði á 20 ár þegar um er að ræða hagnað af sölu bújarða þar sem stundaður er landbúnaður.
Þingskjal 1982, 150. löggjafarþing 34. mál: tekjuskattur (söluhagnaður).
Lög nr. 87 7. júlí 2020.
Lög um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (söluhagnaður).
1. gr.
Við 27. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. er heimilt að dreifa söluhagnaði á 20 ár þegar um er að ræða hagnað af sölu bújarða þar sem stundaður er landbúnaður.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 30. júní 2020.