Ferill 948. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2028  —  948. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.


     1.      Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu?
    Enginn starfsmaður með skerta starfsgetu starfar í ráðuneytinu um þessar mundir.

     2.      Hefur stefna verið mótuð fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu?

    Ekki hefur verið mótuð sérstök stefna fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.