Ferill 977. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2042  —  977. mál.




Fyrirspurn


til utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um sendiráð og ræðismenn Íslands.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Í hvaða erlendu ríkjum og ríkjasamböndum er Ísland með sendiráð og hvenær voru þau stofnuð?
     2.      Hverjir eru sendiherrar Íslands í sendiráðum í einstökum ríkjum og ríkjasamböndum og hvenær hófu þeir störf í viðkomandi sendiráðum?
     3.      Hver er starfsmannafjöldi hvers sendiráðs Íslands?
     4.      Hvernig hefur starfsmannafjöldi hvers sendiráðs Íslands í ríki eða ríkjasambandi þróast frá stofnun þess?
     5.      Í hvaða ríkjum og ríkjasamböndum er Ísland með ræðismenn?
     6.      Hverjir eru ræðismenn Íslands og hvenær hófu þeir störf?


Skriflegt svar óskast.