Ferill 994. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2071  —  994. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um raunverulega eigendur Arion banka.

Frá Ólafi Ísleifssyni.


    Hverjir eru raunverulegir eigendur Arion banka hf., kt. 581008-0150, í skilningi laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Fyrirspurnin er lögð fram að nýju, nú til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, með vísan til svars á þskj. 1900 þar sem fram kemur að málefni fyrirtækjaskrár heyri undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.