Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 559 — 406. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um skerðingu réttinda almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.
Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.
1. Hverjar eru skerðingarreglur einstakra réttindaflokka laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007?
2. Hve mikið hafa greiðslur úr ríkissjóði til einstaklinga lækkað vegna reglnanna á ári hverju undanfarin fjögur ár og hvernig skiptast þær fjárhæðir á milli réttindaflokka?
Skriflegt svar óskast.