Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 709 — 476. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um hærri hámarkshraða.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Á hvaða vegarköflum hefur komið til álita að ákveða hærri hraðamörk en 90 km á klst., sbr. heimild í 4. mgr. 37. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019?
2. Hvaða áhrif hefði slík hækkun á:
a. losun gróðurhúsalofttegunda,
b. svifryksmyndun,
c. tíðni og alvarleika slysa,
d. slit og viðhaldsþörf umferðarmannvirkja,
e. afkastagetu gatnakerfisins,
f. umferðarteppur?
Svarið óskast reiknað á milljón ekinna kílómetra eftir því sem við á.
3. Hvaða áhrif hefði það ef afnumin yrði undanþága til hærri hraðamarka en 50 km á klst. innan þéttbýlis, sbr. 2. mgr. sömu greinar umferðarlaga, á:
a. losun gróðurhúsalofttegunda,
b. svifryksmyndun,
c. tíðni og alvarleika slysa,
d. slit og viðhaldsþörf umferðarmannvirkja,
e. afkastagetu gatnakerfisins,
f. umferðarteppur?
Svarið óskast reiknað á milljón ekinna kílómetra eftir því sem við á.
Skriflegt svar óskast.