Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Prentað upp.
Þingskjal 781 — 496. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um starfsmannafjölda Rarik.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hver hefur þróun starfsmannafjölda verið hjá Rarik frá árinu 2000? Svarið óskast sundurliðað eftir árum, greint niður á starfsstöðvar hvers tíma og hvar starfsfólk hefur verið staðsett utan starfsstöðva.
2. Eru áform um að fjölga eða fækka starfsfólki á einstökum starfsstöðvum eða stöðum?
3. Hvernig skiptast viðskiptavinir Rarik á milli landshluta?
Skriflegt svar óskast.