Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Prentað upp.

Þingskjal 899  —  544. mál.
Leiðréttur texti.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölda íbúða sem ýmis fjármálafyrirtæki og tengd félög eignuðust árið 2019.

Frá Ólafi Ísleifssyni.


    Hver er fjöldi fasteigna, skráðra sem íbúðarhúsnæði, sem hver eftirtalinna aðila varð eigandi að árið 2019 samkvæmt þinglýsingaskrám, að frátöldum fasteignum þar sem fyrri eigandi var lögaðili og að því gættu að einstakar fasteignir séu ekki tvítaldar:
     1.      Íbúðalánasjóður, kt. 661198-3629,
     2.      Arion banki hf., kt. 581008-0150,
     3.      Sparisjóður Strandamanna, kt. 610269-4199,
     4.      Sparisjóður Höfðhverfinga, kt. 610269-6569,
     5.      Sparisjóður Austurlands, kt. 621214-0630,
     6.      Sparisjóður Suður-Þingeyinga, kt. 530990-2149,
     7.      Framtíðin lánasjóður hf., kt. 611114-0790,
     8.      Kvika banki hf., kt. 540502-2930,
     9.      önnur félög sem eru eða hafa verið tengd einhverjum framangreindra aðila vegna eignarhalds, stjórnunar eða sambærilegra atvika?


Skriflegt svar óskast.