Ferill 586. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 963  —  586. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um ótímabær dauðsföll.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hve margir hafa látist hér á landi vegna afstýranlegra orsaka, þ.e. atvika sem hefði mátt koma í veg fyrir, á ári hverju sl. 10 ár?
     2.      Hversu margir hafa látist hér á landi vegna læknanlegra orsaka, þ.e. sjúkdóma sem undir eðlilegum kringumstæðum hefði mátt meðhöndla, á ári hverju sl. 10 ár?
     3.      Hversu margir hafa látist vegna læknamistaka á ári hverju sl. 10 ár?
     4.      Hvaða dánarorsakir hafa valdið þessum dauðsföllum, flokkað eftir tegund og fjölda á ári hverju sl. 10 ár?


Skriflegt svar óskast.