Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 423, 151. löggjafarþing 224. mál: búvörulög (starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða).
Lög nr. 126 2. desember 2020.
Enginn framleiðandi getur fengið hærri heildarframlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða en sem nemur 10% af heildarframlögum til beingreiðslna, að undanskildum beingreiðslum vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku. Hámarkið er reiknað af hverjum beingreiðsluflokki fyrir sig. Hámarksstuðningur af beingreiðslum vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku á hvern framleiðanda er 17,5% af heildarframlögum til þess beingreiðsluflokks.
Þingskjal 423, 151. löggjafarþing 224. mál: búvörulög (starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða).
Lög nr. 126 2. desember 2020.
Lög um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða).
1. gr.
2. mgr. 58. gr. laganna orðast svo:Enginn framleiðandi getur fengið hærri heildarframlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða en sem nemur 10% af heildarframlögum til beingreiðslna, að undanskildum beingreiðslum vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku. Hámarkið er reiknað af hverjum beingreiðsluflokki fyrir sig. Hámarksstuðningur af beingreiðslum vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku á hvern framleiðanda er 17,5% af heildarframlögum til þess beingreiðsluflokks.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2021.Samþykkt á Alþingi 26. nóvember 2020.