Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 635  —  336. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku,
nr. 98/2004 (verðlagshækkun).


(Eftir 2. umræðu, 16. desember.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. a laganna:
     a.      Í stað fjárhæðarinnar „0,30 kr.“ í 1. málsl. kemur: 0,34 kr.
     b.      Í stað fjárhæðarinnar „0,10 kr.“ í 2. málsl. kemur: 0,11 kr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2021.