Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 639, 151. löggjafarþing 21. mál: breyting á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði (breytt kynskráning).
Lög nr. 153 29. desember 2020.
I. KAFLI
Breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
II. KAFLI
Breyting á erfðalögum, nr. 8/1962, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Breyting á lögum um landsdóm, nr. 3/1963, með síðari breytingum.
IV. KAFLI
Breyting á hjúskaparlögum, nr. 31/1993, með síðari breytingum.
V. KAFLI
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, með síðari breytingum.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, með síðari breytingum.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996, með síðari breytingum.
Það sem í lögum þessum segir um konu á einnig við um einstakling með leg sem breytt hefur kynskráningu sinni.
Geymsla fósturvísa er háð því skilyrði að þeir einstaklingar sem lögðu til kynfrumurnar eða fengu þær að gjöf til notkunar við glasafrjóvgun, hvort sem um er að ræða par í hjúskap eða skráðri sambúð eða einhleypan einstakling, veiti skriflegt samþykki fyrir geymslunni í samræmi við tilgang hennar, enda hafi þeim áður verið veittar upplýsingar um áhrif geymslunnar á fósturvísana og hin almennu skilyrði sem sett eru fyrir geymslu kynfrumna og fósturvísa í lögum þessum og reglum samkvæmt þeim.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um ófrjósemisaðgerðir, nr. 35/2019.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum.
X. KAFLI
Breyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum.
Ákvæði þessarar greinar eiga að breyttu breytanda einnig við um bætur til foreldra sem hafa hlutlausa kynskráningu.
XI. KAFLI
Breyting á sjómannalögum, nr. 35/1985, með síðari breytingum.
XII. KAFLI
Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum.
XIII. KAFLI
Breyting á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum.
XIV. KAFLI
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, með síðari breytingum.
XV. KAFLI
Breyting á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum.
XVI. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
Þingskjal 639, 151. löggjafarþing 21. mál: breyting á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði (breytt kynskráning).
Lög nr. 153 29. desember 2020.
Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019 (breytt kynskráning).
1. gr.
Í stað orðanna „hafa eiginmaður eða eiginkona“ í 3. mgr. 25. gr. laganna kemur: hefur hjúskaparmaki.2. gr.
Í stað orðanna „karli, konu eða barni sem eru nákomin geranda“ í 3. mgr. 70. gr. laganna kemur: manneskju, fullorðinni eða barni, sem er nákomin geranda.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 188. gr. laganna:- Í stað orðanna „Ef kvæntur maður eða gift kona gengur að eiga aðra konu eða annan mann“ í 1. mgr. kemur: Ef einstaklingur í hjúskap gengur að eiga aðra manneskju.
- Í stað orðanna „Ókvæntur maður eða ógift kona, sem gengur að eiga gifta konu eða kvæntan mann“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: Ógift manneskja sem gengur að eiga einstakling sem er í hjúskap.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 192. gr. laganna:- Í stað orðanna „faðerni barns eða móðerni“ í 1. mgr. kemur: foreldrastöðu gagnvart barni.
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama á við ef gift manneskja sem breytt hefur skráningu kyns hefur alið barn sem getið er utan hjónabands og tilkynnt það sem hjónabandsbarn með samþykki maka.
5. gr.
Í stað orðanna „móðir deyðir barn sitt“ í 1. mgr. 212. gr. laganna kemur: manneskja sem elur barn deyðir það.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 216. gr. laganna:- Í stað orðsins „Kvenmaður“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Manneskja.
- Í stað orðsins „móður“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: þungaðrar manneskju; og í stað orðsins „móður“ í 2. og 3. málsl. 2. mgr. kemur: hinnar þunguðu manneskju.
7. gr.
Á eftir 1. málsl. 218. gr. a laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama á við ef brotaþoli er manneskja með kvenkyns kynfæri og hefur breytt skráningu kyns.8. gr.
Í stað orðanna „móðir yfirgefið barn sitt“ í 2. mgr. 220. gr. laganna kemur: manneskja sem alið hefur barn yfirgefið það.9. gr.
Í stað orðanna „kvenmanni“ og „móður“ í 223. gr. laganna kemur: manneskju; og: viðkomandi manneskju.10. gr.
Við 2. mgr. 4. gr. laganna bætist: og þegar annað þeirra eða báðir hafa hlutlausa kynskráningu.11. gr.
Í stað orðanna „bæði konum og körlum, sem kjörgeng eru“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: þeim einstaklingum sem kjörgengir eru.12. gr.
Í stað orðanna „eiginkona þess eða eiginmaður“ í 3. tölul. 1. mgr. 28. gr. laganna kemur: maki þess.13. gr.
Í stað orðanna „sambúðarkona eða sambúðarmaður“ í 1. málsl. 1. mgr. 47. gr. laganna kemur: sambúðarmaki.14. gr.
Á eftir 2. málsl. 1. mgr. 79. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Einstaklingum með hlutlausa kynskráningu skal boðið að velja hvort kona eða karl framkvæmir leit á þeim.15. gr.
Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Það sem í lögum þessum segir um konu á einnig við um einstakling með leg sem breytt hefur kynskráningu sinni.
16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 5. gr. laganna:- 3. málsl. orðast svo: Þá er ætíð heimilt að nota gjafasæði sé um að ræða einhleypan einstakling eða einstakling í hjúskap eða skráðri sambúð þar sem makinn getur ekki lagt til sæði.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Pari í hjúskap eða skráðri sambúð er heimilt að gefa hvort öðru kynfrumur.
17. gr.
2. mgr. 9. gr. laganna orðast svo:Geymsla fósturvísa er háð því skilyrði að þeir einstaklingar sem lögðu til kynfrumurnar eða fengu þær að gjöf til notkunar við glasafrjóvgun, hvort sem um er að ræða par í hjúskap eða skráðri sambúð eða einhleypan einstakling, veiti skriflegt samþykki fyrir geymslunni í samræmi við tilgang hennar, enda hafi þeim áður verið veittar upplýsingar um áhrif geymslunnar á fósturvísana og hin almennu skilyrði sem sett eru fyrir geymslu kynfrumna og fósturvísa í lögum þessum og reglum samkvæmt þeim.
18. gr.
Orðin „karla“ og „kvenna“ í 2. gr. laganna falla brott.19. gr.
Í stað orðanna „bæði konum og körlum“ í 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: foreldrum.20. gr.
Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Ákvæði þessarar greinar eiga að breyttu breytanda einnig við um bætur til foreldra sem hafa hlutlausa kynskráningu.
21. gr.
Í stað orðanna „mann, karl eða konu“ í 1. málsl. 2. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. 8. gr. laganna kemur: einstakling.22. gr.
Í stað orðanna „eiginmaður eða eiginkona“ í 2. mgr. 59. gr. laganna kemur: hjúskaparmaki.23. gr.
J-liður 1. mgr. 24. gr. laganna orðast svo: undirbúning nemenda undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi, óháð kyni.24. gr.
J-liður 1. mgr. 23. gr. laganna orðast svo: starfsfólk á fjölmiðlum, greint eftir kyni og starfsheiti.25. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. mgr. 27. gr. laganna:- Í stað orðanna „sambúðarmanni og sambúðarkonu“ í 2. málsl. kemur: sambúðarmaka.
- Í stað orðanna „sambúðarkonu eða sambúðarmanni“ í 3. málsl. kemur: sambúðarmaka.
- Í stað orðsins „sambúðaraðili“ í 3. málsl. kemur: sambúðarmaki.
26. gr.
Við 4. mgr. 159. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Einstaklingum með hlutlausa kynskráningu skal boðið að velja hvort kona eða karl framkvæmir leit á þeim.27. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 16. desember 2020.