Ferill 688. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1748  —  688. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með frávísunartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (sjóðir um sameiginlega fjárfestingu).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Með frumvarpinu er lagt til að lífeyrissjóðum verði heimilt að eiga allt að 35% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra. Heimildin nái til sjóða um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum skv. 1. og 2. tölul. 3. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 19/2009.
    Ákvæði sama efnis og lagt er til er í ákvæði til bráðabirgða XXI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sem gildir til 1. janúar 2025. Með frumvarpinu er lagt til að heimildin verði varanleg, þó með þeirri breytingu að bann við því að fjárfesting fari umfram 1% af heildareignum lífeyrissjóðs falli niður, en lífeyrissjóðum verði gert að taka fram í fjárfestingarstefnu sinni hversu hátt hlutfall af eignum þeirra megi vera í slíkum sjóðum. Þá falli einnig niður ákvæði um að innlausn megi fyrst fara fram að liðnum fimm árum.
    Þegar ákvæði til bráðabirgða XXI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, var sett með lögum nr. 37/2020 (sbr. 726. mál á 150. löggjafarþingi) komu fram mjög skýr sjónarmið í umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða, dags. 29. apríl 2020, sem eru mjög í samræmi við efni þessa frumvarps.
    Nefndin áréttar markmið frumvarpsins um að treysta grundvöll fyrir lífeyrissjóði til þess að taka þátt í uppbyggingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu (vísisjóða) til lengri tíma og sé það til þess fallið að tryggja betur fjármögnun nýsköpunar- og sprotafyrirtækja.
    Nefndin styður framangreint markmið en telur nauðsynlegt að vinna það nánar í samráði við hagsmunaaðila.
    Með vísan til framangreinds leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

    Ólafur Þór Gunnarsson ritar undir nefndarálit þetta með fyrirvara sem hann hyggst gera grein fyrir í ræðu.

Alþingi, 12. júní 2021.

Óli Björn Kárason,
form.
Jón Steindór Valdimarsson,
frsm.
Brynjar Níelsson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Bryndís Haraldsdóttir. Ólafur Þór Gunnarsson,
með fyrirvara.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Smári McCarthy. Þórarinn Ingi Pétursson.