Ferill 116. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1752  —  116. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit með frávísunartillögu


um tillögu til þingsályktunar um launasjóð íslensks afreksíþróttafólks.

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og bárust umsagnir frá Hrafnhildi Lúthersdóttur, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Knattspyrnusambandi Íslands, Sundsambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands.
    Tillagan felur í sér að mennta- og menningarmálaráðherra undirbúi og leggi fram frumvarp til laga um launasjóð íslensks afreksíþróttafólks í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra. Umsagnaraðilar taka undir tillöguna og leggja til að hún verði samþykkt.
    Samhliða tillögu þessari hefur nefndin fjallað um tillögu til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, sbr. 81. mál á yfirstandandi þingi. Málin eru efnislega sambærileg og því telur nefndin fullt tilefni til að þau verði unnin í sameiningu innan ráðuneytisins. Nefndin leggur því til að tillögu þessari verði vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu samhliða framangreindri stefnu. Við vinnslu slíkrar stefnu er mikilvægt að m.a. verði litið til framfærslu afreksíþróttafólks og fjárhagslegs öryggis þess.
    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að þingsályktunartillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu samhliða mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.
    Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álit þetta samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.

Alþingi, 12. júní 2021.

Páll Magnússon,
form.
Guðmundur Andri Thorsson,
frsm.
Birgir Ármannsson.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Silja Dögg Gunnarsdóttir. Steinunn Þóra Árnadóttir.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. Þorsteinn Sæmundsson. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.