Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1762, 151. löggjafarþing 644. mál: ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur).
Lög nr. 93 22. júní 2021.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 2. gr. er Matvælastofnun heimilt að leyfa innflutning á fræjum af tegundinni Cannabis sativa.
Eingöngu er heimilt að veita leyfi skv. 1. mgr. ef skilyrði í reglugerð skv. 3. mgr. eru uppfyllt.
Ráðherra sem fer með málefni landbúnaðar skal setja reglugerð um veitingu undanþágu til innflutnings fræja. Í reglugerðinni skal m.a. kveða á um veitingu leyfis til innflutnings ásamt skilyrðum og takmörkunum á innflutningi.
Matvælastofnun skal hafa eftirlit með innflutningi á fræjum skv. 3. gr., sbr. 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Þingskjal 1762, 151. löggjafarþing 644. mál: ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur).
Lög nr. 93 22. júní 2021.
Lög um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (iðnaðarhampur).
1. gr.
Á eftir 2. gr. a laganna kemur ný grein, 2. gr. b, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 2. gr. er Matvælastofnun heimilt að leyfa innflutning á fræjum af tegundinni Cannabis sativa.
Eingöngu er heimilt að veita leyfi skv. 1. mgr. ef skilyrði í reglugerð skv. 3. mgr. eru uppfyllt.
Ráðherra sem fer með málefni landbúnaðar skal setja reglugerð um veitingu undanþágu til innflutnings fræja. Í reglugerðinni skal m.a. kveða á um veitingu leyfis til innflutnings ásamt skilyrðum og takmörkunum á innflutningi.
Matvælastofnun skal hafa eftirlit með innflutningi á fræjum skv. 3. gr., sbr. 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 12. júní 2021.