Ferill 64. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 64  —  64. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna).

Flm.: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.


1. gr.

    4. málsl. 1. mgr. 23. gr. laganna orðast svo: Þá skulu atvinnutekjur ellilífeyrisþega ekki skerða ellilífeyri.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2022.

Greinargerð.

    Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt til að skerðingar vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega verði afnumdar og er frumvarp þetta fjórða tilraunin til þess. Málið var áður flutt á 148., 149. og 151. löggjafarþingi (650. mál) en hlaut ekki brautargengi og er nú endurflutt.
    Í 3. málsl. 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um að ellilífeyrisþegar skuli hafa 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Þetta sérstaka frítekjumark kemur til viðbótar við hið almenna frítekjumark laganna sem nemur 300.000 kr. á ári. Ef ellilífeyrisþegar hafa launatekjur yfir 1.200.000 kr. á ári þá skerðist ellilífeyrir þeirra um 45% af því sem umfram er. Þetta fyrirkomulag hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin ár af hálfu ellilífeyrisþega. Frítekjumarkið þykir of lágt og skerðingarhlutfallið of hátt. Það borgi sig ekki fyrir ellilífeyrisþega að reyna að auka tekjur sínar með vinnu. Þegar launatekjur eru skattlagðar og leiða einnig til skerðinga á ellilífeyri þá situr nánast ekkert eftir.
    Dr. Haukur Arnþórsson vann greinargerð um fjárhagslega stöðu aldraðra fyrir Félag eldri borgara í Reykjavík og ritaði grein um þá rannsókn sína í Morgunblaðið 23. nóvember 2017. Þar kemur fram að afnám skerðingar á lífeyrisgreiðslur vegna atvinnutekna þurfi ekki að fela í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð og það sé vel hugsanlegt að ríkissjóður gæti haft fjárhagslegan ávinning af aðgerðinni.
    Í kjölfar þinglokasamninga sumarið 2019 samþykkti Alþingi að láta framkvæma úttekt á því hver kostnaðurinn yrði ef frumvarp Flokks fólksins, um afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna, næði fram að ganga. Félagsmálaráðuneytið fékk Capacent til að framkvæma úttektina. Capacent skilaði úttektinni snemma árs 2020. Samkvæmt niðurstöðum Capacent myndi afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna leiða til aukins kostnaðar fyrir ríkissjóð um 2,1 milljarð kr.
    Það vekur upp spurningar þegar tvær úttektir um sama viðfangsefnið skila misvísandi niðurstöðum. Þingmenn Flokks fólksins hafa ítrekað kallað eftir því að fá aðgang að þeim forsendum sem liggja að baki niðurstöðum Capacent en ráðuneytið hefur ekki enn veitt aðgang að þeim.
    Óumdeilt er þó að áframhaldandi vinna eftir að ellilífeyrisaldri er náð eykur möguleika aldraðra til að bæta kjör sín, einkum þeirra sem lægstar hafa tekjurnar. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að vinna og virkni á efri árum stuðlar að betri heilsu, dregur úr einangrun og hefur almennt mikið félagslegt gildi fyrir eldri borgara. Núgildandi lagarammi dregur verulega úr atvinnuþátttöku eldri borgara. Því er lagt til að skerðingar ellilífeyris vegna atvinnutekna verði afnumdar.