Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 69  —  69. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir).

Flm.: Guðmundur Ingi Kristinsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.

1. gr.

    2. mgr. 39. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

    2. og 3. mgr. 40. gr. laganna falla brott.

3. gr.

    Í stað orðanna „umsækjanda, greiðsluþega eða maka hans“ í 1. málsl. 41. gr. laganna kemur: umsækjanda eða greiðsluþega.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarpið var lagt fram á 149., 150. og 151. löggjafarþingi (93. mál) og er nú lagt fram að nýju óbreytt.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tilteknum ákvæðum um upplýsingaskyldu í lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, nánar tiltekið ákvæðum sem heimila Tryggingastofnun ríkisins að afla upplýsinga um tekjur maka umsækjanda eða greiðsluþega samkvæmt lögunum að fengnu skriflegu samþykki beggja og ákvæði er skyldar maka til að taka þátt í meðferð máls. Þá verði umsækjandi eða greiðsluþegi ekki látinn bera hallann vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja má til maka hans.
    Það er mat flutningsmanna að gildandi ákvæði laganna um upplýsingaskyldu gangi of langt í skerðingu á friðhelgi einkalífs umsækjenda og greiðsluþega og rétti til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika, sbr. ákvæði 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Þá er sú meginregla ákveðin í a-lið 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að virðing skuli borin fyrir meðfæddri göfgi og sjálfræði einstaklinga, þ.m.t. frelsi til að taka eigin ákvarðanir, og sjálfstæði þeirra. Er það mat flutningsmanna að ákvæði gildandi laga um almannatryggingar séu íþyngjandi og leggi of ríkar kvaðir á einstakling, sem nýtur réttinda samkvæmt samningnum, að afla upplýsinga hjá maka sínum og íþyngi einstaklingi sem bera þarf hallann af vanrækslu maka á því að sinna upplýsingaskyldu sinni. Lögin heimila þannig frestun á ákvörðun og greiðslu bóta vegna atriða sem ekki verða rakin til umsækjanda eða greiðsluþega sjálfs.
    Með vísan til umsagna sem velferðarnefnd bárust við meðferð málsins á síðasta kjörtímabili skal þess getið að á grundvelli 43. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, getur Tryggingastofnun aflað upplýsinga, sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að framfylgja lögunum, frá þeim aðilum sem getið er í ákvæðinu án aðkomu maka þeirra.