Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 109  —  109. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um biðtíma hjá Þroska- og hegðunarstöð.

Frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.


     1.      Hver er biðtími eftir greiningu hjá Þroska- og hegðunarstöð? Óskað er eftir yfirliti yfir biðtíma síðustu fimm ár, sundurliðað.
     2.      Hversu mörg börn eru á biðlista hjá stöðinni? Óskað er eftir upplýsingum um lengd biðlista síðustu fimm ár, sundurliðað.
     3.      Hversu mikið fjármagn hefur ríkissjóður veitt árlega til starfseminnar síðustu fimm ár?


Skriflegt svar óskast.