Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 119  —  1. mál.
1. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2022.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


Skv. frv.
m.kr.
Breyting
m.kr.
Samtals
m.kr.
Breytingar á sundurliðun 2:
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
    Við 32.20 Jafnréttismál
         01 Forsætisráðuneyti
    a.     Heildarfjárheimild
340,0 24,0 364,0
    b.      Framlag úr ríkissjóði
315,2 24,0 339,2

Greinargerð.

    Lagt er til að færa inn að nýju fjárheimild til stuðnings Samtakanna ´78 frá fjárlögum fyrir árið 2021, sem felld er út í frumvarpi til fjárlaga 2022. Í samræmi við markmið samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks hlýtur að vera um yfirsjón að ræða sem mikilvægt er að leiðrétta.