Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 345  —  245. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um nauðungarsölu, fjárnám og gjaldþrotaskipti hjá einstaklingum.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hversu margar fasteignir einstaklinga voru seldar nauðungarsölu árið 2021? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna.
     2.      Hversu mörg fjárnám voru gerð hjá einstaklingum árið 2021 og hversu mörg þeirra reyndust árangurslaus? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna.
     3.      Bú hversu margra einstaklinga voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2021? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, dómstólum og umdæmum þeirra.
    

Skriflegt svar óskast.