Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 362  —  258. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um minnisblöð sóttvarnalæknis og ákvarðanir ráðherra.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hversu mörgum minnisblöðum hefur embætti sóttvarnalæknis skilað til ráðherra frá upphafi COVID-19-faraldursins? Óskað er eftir útlistun allra minnisblaðanna.
     2.      Í hvaða tilvikum var farið að hverri framkominni tillögu sóttvarnalæknis og hvenær ekki eða að hluta? Óskað er nákvæmrar greiningar á þessum atriðum.
     3.      Með hvaða hætti uppfyllti ráðherra rannsóknarskyldu sína við hverja ákvörðun sína um sóttvarnaaðgerðir?


Skriflegt svar óskast.