Ferill 765. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1363  —  765. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um endurmenntun til ökuréttinda.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hver er fjöldi einstaklinga sem hefur sótt sér endurmenntun til að viðhalda auknum ökuréttindum síðastliðin 10 ár? Óskað er eftir að fjöldinn verði tilgreindur eftir árum og skipt eftir kyni og landshlutum.
     2.      Hvert hefur verið aldursviðmið til að öðlast aukin ökuréttindi undanfarin 30 ár og hafa undanþágur hafi verið veittar frá því?


Skriflegt svar óskast.