Ferill 123. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 123  —  123. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um flutning höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina.


Flm.: Halla Signý Kristjánsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Stefán Vagn Stefánsson, Ingibjörg Isaksen.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að stefna að flutningi höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina og að kanna á grundvelli hagsmuna félagsins hvar væri hentugast að byggja upp höfuðstöðvarnar og efla starfsstöðvar Rariks um landið.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var lögð fram á 151. löggjafarþingi (379. mál) og er nú endurflutt nær óbreytt.
    Rarik ohf. er opinbert hlutafélag sem stofnað var 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins. Meginhlutverk Rariks ohf. er að afla raforku og dreifa henni með hagkvæmum hætti til almennings og atvinnulífs. Um 90% af dreifikerfi raforku í landinu eru í umsjón félagsins, m.a. í flestum sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins, Reykjanesskaga og Vestfjarða, að því er fram kemur á heimasíðu þess. Mikilvægi Rariks ohf. fyrir samfélagið í heild er óumdeilt.
    Höfuðstöðvar Rariks ohf. eru í Reykjavík. Rarik ohf. er vinnuveitandi um 200 starfsmanna, sem starfa víða um landið. Af þeim starfa um 60 manns á höfuðborgarsvæðinu. Mikill meiri hluti opinberra stofnana og hlutafélaga er á höfuðborgarsvæðinu og sömuleiðis eru flestar höfuðstöðvar opinberra stofnana og hlutafélaga þar. Þetta leiðir til þess að yfirgnæfandi fjöldi opinberra starfa stendur einungis einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu eða í nærliggjandi byggðum til boða, eðli málsins samkvæmt. Í IX. kafla grundvallarstefnuskrár Framsóknarflokksins kemur fram að flokkurinn telji það til grundvallarréttinda að fólki sé kleift að velja sér búsetu á landinu þar sem það kýs. Til þess að uppfylla það markmið þarf að tryggja ákveðin búsetuskilyrði um allt land. Með því er m.a. átt við að tryggð séu fjölbreytt atvinnutækifæri um allt land. Með dreifingu opinberra starfa, t.d. í höfuðstöðvum Rariks ohf., mundi hið opinbera stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land. Á þann hátt er hægt að jafna búsetuskilyrði og gera fólki kleift að velja sér búsetu þar sem það kýs ásamt því að koma í veg fyrir mismunun sem gerir greinarmun á fólki eftir búsetu.
    Eins og nefnt er að framan hefur Rarik ohf. umsjón með 90% af dreifikerfi raforku í landinu, en það nær til Vesturlands, Norðurlands, Austurlands og Suðurlands og 43 þéttbýliskjarna víðs vegar um landið. Af þessu er ljóst að starfsemin er viðamikil og dreifð um landið allt. Finna má bækistöðvar félagsins m.a. á Selfossi, Höfn í Hornafirði, Seyðisfirði, Sauðárkróki, Siglufirði og í Ólafsvík. Meginstarfsemi Rariks ohf. fer fram á landsbyggðinni auk þess sem allar virkjanir félagsins eru þar. Þó eru höfuðstöðvar félagsins í Reykjavík. Núverandi staðsetning höfuðstöðvanna er ekki talin endurspegla starfsemina jafn vel og hægt væri.

Fjölbreyttari störf á landsbyggðina.

    Fólksfækkun á landsbyggðinni vegna flutninga til höfuðborgarsvæðisins hefur lengi verið meginvandamál samfélaga á landsbyggðinni. Meðal helstu ástæðna fólksfækkunarinnar er skortur á störfum og lítil fjölbreytni starfa. Atvinnuöryggi og fjölbreytni starfa tryggir stöðugleika í íbúafjölda, laðar frekar til sín nýja íbúa og stuðlar að því að ungt fólk snúi heim aftur eftir nám. Skortur á fjölbreytni skekkir hlutfall þeirra aldurshópa sem eru almennt virkastir á vinnumarkaðinum. Þetta leiðir til fækkunar íbúa sem hefur í för með sér skerðingu á útsvarstekjum sveitarfélaga.
    Mikilvægt er að tryggja jöfn búsetuskilyrði um land allt. Með því að dreifa ríkisstörfum jafnt um landið er hægt að tryggja öllum landsmönnum jöfn tækifæri ásamt því að halda landinu öllu í blómlegri byggð. Það er þó aðeins gert við rétt skilyrði, sem flutningsmenn telja vera fyrir hendi í tilviki flutnings Rariks ohf. á landsbyggðina.