Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 269  —  268. mál.




Beiðni um skýrslu


frá innviðaráðherra um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í fasteignum og um réttarstöðu eigenda þeirra.

Frá Halldóru Mogensen, Andrési Inga Jónssyni, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Birni Leví Gunnarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Gísla Rafni Ólafssyni, Guðmundi Inga Kristinssyni, Ingu Sæland, Jakobi Frímanni Magnússyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Kristrúnu Frostadóttur, Sigmari Guðmundssyni, Tómasi A. Tómassyni og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að innviðaráðherra flytji Alþingi skýrslu um rakaskemmdir í fasteignum og um réttarstöðu eigenda þeirra. Í skýrslunni komi eftirfarandi fram:
     1.      Hvað er vitað um ástæður þess að húseignir á Íslandi skemmast af völdum raka? Er skýringa að leita í aldri bygginga, byggingarefni, hönnun, handvömm á byggingartíma, einangrun eða skorti á viðhaldi og eftirliti?
     2.      Hver er réttarstaða einstaklinga sem verða fyrir tjóni af völdum rakaskemmda og myglusvepps í samanburði við nágrannalöndin? Hver er ábyrgð seljanda fasteignar, fagaðila við byggingarstarfsemi, seljanda byggingarefnis og eftirlitsaðila með byggingarframkvæmdum?
     3.      Hvernig er unnt að bæta réttarstöðu þeirra sem verða fyrir slíku tjóni og auka tryggingavernd vegna þess mikla kostnaðar og heilsutjóns sem rakaskemmdir í húsum hafa í för með sér? Er fyrirhugað að koma á byggingargallatryggingu við nýbyggingar og eigendaskiptatryggingu við kaup og sölu á fasteignum að danskri fyrirmynd?

Greinargerð.

    Sams konar beiðni var lögð fram á 150. löggjafarþingi, 151. löggjafarþingi og 152. löggjafarþingi (638. mál) án þess að skýrsla bærist þinginu.
    Lítið er til af heildstæðum upplýsingum um rakaskemmdir og myglu í fasteignum og um áhrif þeirra á þá sem þar dvelja. Með þessari skýrslubeiðni er þess farið á leit að teknar verði saman ástæður rakaskemmda í fasteignum og að áhrif á einstaklinga verði metin, bæði heilsufarsvandi og kostnaður vegna þessa. Flutningsmenn vona að svörin nýtist til þess að áætla umfang vandans og varða leiðina til þess að útrýma þessum vágesti og bæta réttarstöðu þeirra sem verða fyrir slíku tjóni.