Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 325  —  315. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022 (makamissir).

Flm.: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Sigmar Guðmundsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunnarsson, Gísli Rafn Ólafsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Helga Vala Helgadóttir,
Jóhann Páll Jóhannsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


1. gr.

    Á eftir orðunum „barnsmissis“, „barnsmissi“ og „barnsmissir“ hvarvetna í 2. gr., 1. og 2. mgr. 18. gr., 1. og 2. mgr. 19. gr., 1., 3. og 4. mgr. 21. gr. og 37. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: eða makamissir.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      Við 3. tölul. bætist: eða makamissi.
     b.      Eftirfarandi orðskýring bætist við í viðeigandi stafrófsröð: Makamissir: Þegar foreldri verður fyrir því að hjúskapar- eða sambúðarmaki þess andast.
     c.      Á eftir orðinu „barnsmissis“ í 6. og 7. tölul. kemur: eða makamissis.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða makamissi.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Réttur foreldris til sorgarleyfis vegna barnsmissis eða makamissis.

4. gr.

    Á eftir orðunum „barnsmissi“, „barnsmissir“ og „barnsmissis“ í 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 15. gr., 5. mgr. 17. gr., 1., 2. og 4. mgr. 22. gr., 2. mgr. 25. gr. og 9. mgr. 32. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: makamissir.

5. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2023.

Greinargerð.

    Ár hvert verða um 100 börn á Íslandi fyrir því þunga áfalli að missa foreldri. Á árunum 2009–2018 misstu 1.007 börn á Íslandi foreldri samkvæmt tölum Hagstofunnar. Á því tímabili létust 649 foreldrar barna undir 18 ára aldri en þar af voru 448 feður en mæður 201. Um 40% foreldranna létust úr krabbameinum. Mikilvægt er að eftirlifandi foreldri fái svigrúm til sorgarúrvinnslu og svigrúm til að vera til staðar fyrir barn sitt eða börn eftir andlát makans. Þær réttarbætur sem hér eru lagðar til eru því ekki síst hugsaðar með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Með þessu frumvarpi er því lagt til að þeir foreldrar barna yngri en 18 ára að aldri sem missa maka sinn fái heimild til að taka allt að 6 mánaða leyfi frá störfum og greiðslur frá Vinnumálastofnun meðan á því leyfi stendur.

Áhrif sorgar á fjölskyldur viðurkennd.
    Frumvarpi þessu er ætlað að viðurkenna áhrif sorgar á fjölskyldur í kjölfar þess að barn missir foreldri og einstaklingur missir maka frá ungum börnum. Stórt skref var stigið þegar Alþingi samþykkti lög um sorgarleyfi fyrir foreldra sem missa barn með lögum nr. 77/2022. Hér er því lagt til að réttur foreldra barna undir 18 ára aldri sé lagður að jöfnu við þau réttindi sem foreldrum sem missa barn voru færð með þeim lögum. Miklu skiptir að styðja eftirlifandi foreldri barna á þann hátt sem lög um sorgarleyfi veita foreldrum sem misst hafa barn sitt. Á sama hátt skiptir það miklu að þau börn sem misst hafa foreldri fái notið þessa stuðnings.
    Öllum má vera ljóst hversu þung staða fjölskyldna er þegar foreldri barns fellur frá. Ekki þarf að fjölyrða um hversu sár missir það er fyrir barn að missa foreldri sitt. Né þarf að fjölyrða um hversu þungbært það er fyrir það foreldri sem eftir stendur eða að því fylgir álag fyrir fjölskylduna í heild sinni. Í ofanálag kemur til tekjumissir heimilis og í einhverjum tilvikum fjárhagsáhyggjur honum samhliða. Það á ekki síst við þar sem foreldrar eru ungir að árum. Engin efni eru því til að bíða með það að veita þessum fjölskyldum þann mikilvæga stuðning sem fólst í áðurnefndri lagasetningu í þágu foreldra sem misst hafa barn. Er í því sambandi haft í huga að þessi lagabreyting kemur börnum þessara fjölskyldna til góða. Sjónarmið Barnasáttmálans eru vegvísir í þeim efnum. Þá voru umsagnir m.a. Sorgarmiðstöðvar og Krabbameinsfélags Íslands um frumvarp til laga um sorgarleyfi afdráttarlausar um mikilvægi þess að lögin næðu til fleiri fjölskyldna, sérstaklega þegar foreldri missir maka frá barni eða börnum. Það væri sá hópur syrgjenda sem er hætta á að hafi ekki tök á því að taka sér veikindaleyfi eftir andlát maka eins og rakið er í umsögn Sorgarmiðstöðvar.

Þýðingarmikill stuðningur á viðkvæmum tíma.
    Með sorgarleyfi er átt við leyfi frá launuðum störfum á innlendum vinnumarkaði í kjölfar þess að einstaklingur missir maka sinn sem hann á barn eða börn undir 18 ára aldri með. Sem fyrr segir verða ár hvert um 100 börn á Íslandi fyrir því að missa foreldri sitt. Frumvarpi þessu er þannig ætlað að rýmka núgildandi lög um sorgarleyfi með þeim hætti að sorgarleyfi og sorgarstyrkur nái einnig til þeirra barnafjölskyldna, þar sem foreldri barns eða maki foreldris hefur látist. Í lögum um sorgarleyfi er hugtakið foreldri skilgreint víðtækara en almennt í lögum. Nær það til foreldra, forsjáraðila og einstaklinga sem hafa gegnt foreldraskyldum gagnvart barni 12 mánuði eða lengur fyrir barnsmissi. Sú skilgreining á einnig við í tilviki þeirrar breytingar sem lögð er til með frumvarpinu en gert er ráð fyrir að makamissir eigi við um þau tilvik þegar foreldri í skilningi laganna verður fyrir því að hjúskapar- eða sambúðarmaki þess andast. Er þá jafnframt lagt til að skilgreining hugtaksins foreldris breytist á þann hátt að aðrir en foreldrar eða forsjáraðilar teljist einnig foreldrar í skilningi laganna hafi þeir gegnt foreldraskyldum gagnvart barni 12 mánuði eða lengur fyrir makamissi.
    Á þennan hátt er fjölskyldum veittur þýðingarmikill stuðningur á afar viðkvæmum tíma í lífi þeirra og fjárhagsstuðningur til að mæta tekjutapi. Miðað verði við sömu hámarksgreiðslu, þ.e. að mánaðarleg greiðsla skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna en 600 þús. kr. að hámarki á mánuði. Þá er í þessu frumvarpi einnig gert ráð fyrir að foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli, þar á meðal námsmönnum, sé tryggður sorgarstyrkur verði þeir fyrir makamissi, að lágmarki 87.062 kr. á mánuði. Þá er miðað við að foreldrar geti nýtt rétt sinn til sorgarleyfis samhliða skertu starfshlutfalli og einnig yfir lengra tímabil. Jafnframt er lagt til að foreldri verði heimilt að skipta greiðslutímabili sorgarstyrks yfir fleiri tímabil en þó geti greiðslutímabilið skemmst varað hálfan mánuð í senn. Er miðað við að réttindi foreldra í þessum aðstæðum séu þannig að öllu leyti sambærileg réttarstöðu þeirra foreldra sem misst hafa barn. Þannig muni sorgarleyfið fela í sér mánaðarlegar greiðslur yfir ákveðið tímabil til einstaklinga sem verða fyrir makamissi, sem eiga barn eða börn undir 18 ára aldri með hinum látna. Foreldrar í þessari stöðu eru nú alfarið háðir skilningi vinnuveitanda sem og því að vinnuveitandi hafi svigrúm til að veita frí eða sveigjanleika þegar sorgin knýr dyra.

Ísland yrði fyrst Norðurlanda til að styðja við barnafjölskyldur með þessum hætti.
    Með þessari lagasetningu yrði Ísland fyrst Norðurlanda til að styðja við fjölskyldur með þessum þýðingarmikla hætti þegar sorgin knýr dyra. Miklu skiptir að styðja við einstaklinga sem missa maka frá ungum börnum. Með því fá foreldrar ungra barna nauðsynlegt svigrúm til að styðja við börn sín og fjölskylduna í heild.