Ferill 452. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 527  —  452. mál.
Málsnúmer.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um áskrift að dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum eru ráðuneytið og stofnanir og aðrir aðilar sem heyra undir það í áskrift að?
     2.      Hversu margar áskriftir eru að hverjum miðli?
     3.      Hver er heildarfjárhæð áskriftar á ári fyrir hvern miðil?


Skriflegt svar óskast.