Ferill 467. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 547  —  467. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um samstarf við utanríkisráðuneytið í tengslum við endurskoðun landbúnaðarsamnings Íslands og Evrópusambandsins.

Frá Högna Elfari Gylfasyni.


    Er samstarf milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins vegna misræmis á útflutningstölum ESB og Íslands og þá einkum í tengslum við samningaviðræður Íslands og ESB um endurskoðun landbúnaðarsamnings Íslands og ESB sem nú standa yfir?


Skriflegt svar óskast.

Greinargerð.

    Í úttekt frá 2021 sem framkvæmd var á vegum utanríkis- og þróunarsamvinnuráðuneytisins og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á hagsmunum Íslands samkvæmt EES-samningnum kemur fram að misræmi sé milli inn- og útflutningstalna og að misræmið gefi ranga mynd af stöðu utanríkisviðskipta og skekki samkeppnisstöðu bænda ásamt því að hafa áhrif á tekjuöflun ríkissjóðs.