Ferill 630. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 993  —  630. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um rannsókn kynferðisbrotamála.

Frá Gísla Rafni Ólafssyni.


     1.      Hvers vegna eru ekki til töluleg gögn um hve langan tíma rannsókn kynferðisbrota tekur frá tilkynningu brots og þar til rannsókn lögreglu lauk, sbr. skriflegt svar ráðherra á yfirstandandi þingi (þskj. 754)?
     2.      Hvers vegna er rannsóknarmeðferð kynferðisbrotamála að lengjast á meðan ákærumeðferð þeirra styttist, sbr. fyrrgreint svar?
     3.      Stendur til að fjölga stöðugildum rannsóknarlögreglumanna í kynferðisbrotamálum vegna lengingar málsmeðferðartíma?


Skriflegt svar óskast.