Ferill 649. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1019  —  649. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um markmið hæfniviðmiða í skólaíþróttum.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Telur ráðherra hæfniviðmið aðalnámskrár í skólaíþróttum varðandi líkamlega getu vera réttlætanleg í ljósi ólíks líkamlegs atgervis nemenda og náttúrulegra eiginleika þeirra?
     2.      Hefur farið fram eða stendur yfir vinna á vegum ráðuneytisins um að endurskoða markmið íþróttakennslu í skólum með tilliti til ólíkrar samsetningar nemendahópa?


Skriflegt svar óskast.