Ferill 653. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1023  —  653. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um hindranir fjölmiðla á Keflavíkurflugvelli.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hefur ráðherra aflað sér upplýsinga um af hverjum og á hvaða forsendum og grundvelli, þ.m.t. lagalegum heimildum, ákvörðun var tekin um að beina flóðljósum að fjölmiðlafólki, sem hindraði störf þess aðfaranótt 3. nóvember 2022 á Keflavíkurflugvelli?
     2.      Telur ráðherra að sú ákvörðun sem getið er í lið 1 hafi verið í samræmi við alþjóðlega mannréttindasáttmála, íslensk lög og hefðbundnar verklagsreglur?
     3.      Brást ráðuneytið við ofangreindum atvikum á einhvern hátt? Ef svo er, hvernig? Ef ekki, af hverju ekki?


Skriflegt svar óskast.